Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Blogg

17.11.2009

Boltum og leik tapað í Forsetahöllinni

Of margir tapaðir boltar urðu Þórismönnum að falli í Forsetahöllinni á Álftanesi í gærkvöldi, í frekar bragðdaufum leik.  Í byrjunarliðinu voru Hlynur, Viðar, Helgi, Benni og Oddur.  Bekkinn vermdu Sigurjón, Bjössi, Jón Ívar, Einar Valur, Burkni og Óskar.

KKF Þórir hefur ekki haft það að sið að taka of mörg stig af Álftnesingum á þeirra heimavelli og kom eini sigur okkar gegn þeim í síðustu 5 leikjum í sjálfri Laugardalshöllinni.  Álftnesingar höfðu byrjað vel á tímabilinu, leiddu riðilinn og voru enn ósigraðir fyrir leikinn.  Fyrirfram mátti því búast við erfiðri, en jafnframt skemmtilegri viðureign.

Heimamenn opnuðu leikinn með þriggja stiga sókn.  Hlynur svaraði strax með góðri körfu, en við fáum í kjölfarið á okkur tvær körfur frá sama leikmanninum.  Helgi tekur málin í sínar hendur og setur á þá tvö víti og góða körfu fljótlega á eftir.  Liðin skiptast á að skora og um miðbik fyrsta leikhluta jafnar Helgi leikinn í 12-12.  Þá hófst smá værukærðarkafli hjá okkur og við fáum á okkur 7 stig án þess að ná að svara fyrir okkur.  Leikhlutinn endar svo 21-14 fyrir heimamenn og við búnir að tapa 6 boltum.

Annar leikhluti byrjar ágætlega, þar sem Helgi setur tvær körfur og Viðar eina, staðan orðin jöfn á ný, 21-21.  Eftir að hafa byrjað leikinn ágætlega á vítalínunni, fer að halla undan fæti í þeim málum og við klúðrum 4 vítaskotum í röð.  Við náum þó að hanga í þeim framan af í fjórðungnum, þrátt fyrir mikil vandamál undir körfunni hjá okkur.  Þá kemur annar slæmur kafli hjá okkur og þristar frá sjöunni og góðar körfur undir frá þeim stóra nr. 13 skila Álftnesingum upp fyrir 10 stiga muninn, staðan í hálfleik 48-32, tapaðir boltar hjá okkur komnir í 13 stk.

Eftir að hafa farið vandlega yfir stöðu mála í hálfleik, mættu Þórismenn aftur til vallar, staðráðnir í að gera betur í seinni hálfleik.  Við opnum 3ja leikhluta með körfu frá Viðari, en heimamenn ná að svara með tveimur körfum.  Oddur setur niður góðan þrist, en aftur svara heimamenn með tveimur körfum.  Sigurjón kemur inn í leikinn og er ekki lengi að láta að sér kveða.  Hann fyllir statt-línuna í fjórðungnum og á m.a. gott varið skot (okkar eina í leiknum).  Bæði lið eiga í nokkrum vandræðum með að skora og síðustu 5 mínútur 3ja leikhluta koma öll stig liðanna af vítalínunni.  Staðan eftir 3 leikhluta 61-44.  Aðrir sex tapaðir boltar hér, alls 19.

Í fjórða leikhluta setur Hlynur fyrstu stigin, en heimamenn svara strax.  Bjössi minnkar muninn, en leikmaður nr. 9 hjá Álftnesingum setur næstu fjögur stig.  Hér missum við Helga útaf með 5. villuna, fyrir minni sakir en engar.  Tvær körfur hjá Sigurjóni reyndust okkar síðustu stig utan af velli í leikhlutanum, en Benni setti að auki eitt víti.  Aðeins 16 stig skoruð alls í leikhlutanum og 41 í öllum seinni hálfleik, lokastaða 68-53, tapaðir boltar enduðu í 26!

Það var alltaf á brattann að sækja í þessum leik, en við komum okkur oftar en einu sinni inn í leikinn, þegar öll nótt virtist úti.  Vörnin hélt nokkuð vel út leikinn, fyrir utan tvo slæma kafla.  Stigaskor liðanna ber vott um ágætis varnarleik, en að sama skapi hefði sóknarleikurinn einnig mátt vera betri.  Slæmar sendingar urðu okkur að falli í leiknum og misstum við boltann alltof oft til að eiga nokkuð skilið út úr leiknum.

Nokkrir punktar úr leiknum:

  • Við bættum vítanýtinguna frá síðasta leik, en góð var hún þó ekki - 14 af 31 ofan í - sautján stig í súginn.
  • 26 tapaðir boltar?  Við verðum að gefa okkur meiri tíma í sóknarleiknum, sjá opna menn og hætta óþarfa dribbli.
  • Fyrir utan 2. leikhluta, þar sem við náum 4 sóknarfráköstum, höfum við ekki mikinn áhuga á því að fá annan séns í sókninni.
  • Vörnin er að halda nokkuð vel hjá okkur, þurfum að halda dampi þar og laga aðra vankanta, þá erum við á leið inn á beinu brautina á ný.
  • Benni sneri aftur úr meiðslum (eftir Looney Tunes-í-gegnum-vegg-hlaupið hér um daginn) og nældi sér í rautt nef í þessum leik - ATH - muna eftir skyndihjálpartöskunni næst.

Umsögn Álftesinga um leikinn
Myndir Álftnesinga frá leiknum
Tölfræði Álftnesinga úr leiknum
Myndir okkar úr leiknum

Tölfræði úr leik - Umf. Álftanes - KKF Þórir

Stigahæstu menn:

Helgi Þorvaldsson Helgi Þorvaldsson 21 stig 8 frk 0 stoðsendingar
Viðar Tulinius Viðar Tulinius 9 stig 5 frk 1 stoðsendingar
Sigurjón Sigurjónsson Sigurjón Sigurjónsson 6 stig 1 frk 1 stoðsendingar

Athugasemdir »

1

Benni

19.11.2009 10:24

Flott samantekt, munum svo markmiðið fyrir hlé, 4-3 hlutfall! :)

Er hægt að sjá myndirnar einhversstaðar sem félagi ykkar var að taka?

2

Jón Ívar

19.11.2009 18:07
Hann ætlaði eitthvað að skoða yfir myndirnar og sjá hvort það væru einhverjar nothæfar myndir þarna.
3

Jón Ívar

20.11.2009 21:50

Ég er búinn að setja inn myndir frá Álftanes-leiknum, þær eru komnar inn í myndagallerýið á síðunni.

Smellið hér til að skoða myndir.

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Síðuaðgerðir

Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Senda á facebook Blogg á RSS-formi

Æfingar

Þriðjudaga, kl. 22:00-23:00
(Íþróttahúsi Fellaskóla)
Fimmtudaga, kl. 22:00-23:00
(Íþróttahúsi Fellaskóla)
Föstudaga, kl. 18:00-19:00
(Íþróttahúsi Árbæjarskóla)

Staðan

Lið Leikir U T Stig
Umf. Álftanes 15 13 2 26
HK 15 9 6 18
Félag Litháa 15 8 7 16
Reynir S. 15 7 8 14
Mostri 15 7 8 14
KKF Þórir 15 1 14 2

Úr leikjaskrá

8.3.2010
Umf. Álftanes 93-80 KKF Þórir
20.3.2010
KKF Þórir 68-73 HK


Toppmynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta