Blogg
24.11.2009
Tap gegn HK okkur sjálfum að kenna
Fjórði tapleikur KKF Þóris í röð staðreynd eftir frekar sveiflukenndan leik gegn reynsluboltunum í HK í Kennaraháskólanum í hádeginu á laugardag. Þar getum við aðeins okkur sjálfum um kennt, en höfum vonandi á sama tíma lært okkar lexíu. Byrjunarliðið skipuðu þeir Hlynur, Viðar, Helgi, Maggi og Bjössi. Á bekknum voru Sigurjón, Benni, Einar Valur, Oddur, Þórir og Jón Ívar.
Fyrsti leikhluti byrjar á því að Bjössi setur niður þrist og Helgi bætir við tveimur vítaskotum í kjölfarið. HK-menn svara þó fljótlega með tveimur körfum. Hlynur tekur sig til og ræðst þá á körfuna og skilar fimm stigum í hús á sömu mínútunni. Helgi heldur svo áfram að bæta við stigum af vítalínunni og staðan þá orðin 12-4 fyrir okkur. HK ná að klóra aðeins í bakkann en við tökum annað áhlaup á þá og setja Helgi og Viðar niður næstu 7 stig fyrir okkur, áður en þjálfari HK (Árni) minnkar muninn í 19-8, en hann hafði þá skorað síðustu 6 stig HK-manna. Við misnotum 3 vítaskot í röð, eftir annars góða byrjun af línunni, en svo náum við öðrum góðum kafla og staðan því eftir fyrsta leikhluta 27-15, okkur í vil.
Í byrjun annars leikhluta skiptast liðin á því að skora, en smá kæruleysi hjá okkur verður til þess að eftir aðeins fjögurra mínútna leik í fjórðungnum höfðum við fengið á okkur 11 stig gegn fjórum. Við rönkum við okkur á ný og þristar frá Hlyn og Einari og tveggja stiga karfa frá Helga koma okkur aftur í þægilega stöðu, 39-26. Þá fer heldur að halla undan fæti hjá okkur og taka HK tvær góðar skorpur á síðustu þremur mínútum fjórðungsins, þar af síðustu 8 stigin. Tveir menn leiddu sérstaklega þessa stórsókn HK-manna, leikmaður nr. 10 (Hjörtur) setti á okkur 13 stig í leikhlutanum og leikmaður nr. 8 (Einar) setti 11. Staðan jöfn í hálfleik, 46-46.
Þriðji leikhluti fer seint í sögubækurnar fyrir góða frammistöðu af okkar hálfu. Við klikkum úr fyrstu 7 tveggja stiga skotunum okkar utan af velli, en Viðar nær að setja tvö vítaskot. Það rata þó að lokum 3 skot í körfuna í leikhlutanum og koma þau öll frá Viðari. Við hittum úr 3 af 17 skotum og töpum fimm boltum í fjórðungnum. Viðar með 8 stig, HK með 17 og staðan því alls orðin 54-63, HK-mönnum í vil.
Í fjórða leikhluta missum við svo endanlega tökin og náum ómögulega að stöðva HK. Þeir taka tvo góða kafla og setur áttan m.a. á okkur tvo þrista og með þeim seinni kemur hann HK í 18 stiga mun. Þá kemur loks góður kafli hjá okkur og með 8 stigum í röð (Bjössi og Einar með sína körfuna hvor og Oddur með tvær) og staðan skyndilega komin í 70-80. Við förum að pressa þá aðeins og sendum þá miskunnarlaust á vítalínuna, þar sem þeim bregst óvænt nokkuð bogalistin. Oddur setur þrist og Helgi tvö víti og enn pressum við. Liðin skiptast áfram á að skora af vítalínunni, án þess þó að við komumst nær en í 8 stiga mun. Oddur skorar svo lokakörfuna undir blálokin og 8 stiga tap því staðreynd, 79-87.
Athyglisverðir punktar úr leiknum:
- Eigum einn okkar besta fjórðung í lengri tíma, spilið flott, vörnin góð, skotin að rata og vítin að fara ofaní - en það dugir því miður skammt
- Við tökum 51 frákast í leiknum, en það er heldur ekki nóg til að vinna leikinn, þurfum kannski svolítið að hugsa hvað við ætlum að gera við boltann EFTIR að við tökum frákastið
- Vítin voru skyndilega ekki okkar mesti höfuðverkur - æfingarnar skapa greinilega meistarann
- Pressan undir lokin skilaði sínu, við fengum smá séns til að komast inn í leikinn aftur, eftir að HK fóru óvænt að misnota vítaskotin sín
- Undirritaður (Jón Ívar) fékk sína fyrstu óíþróttamannslegu villu á ferlinum, eftir að hafa þrykkt tólfunni fullharkalega í gólfið undir lokin. Við ætluðum jú að brjóta, en þetta var kannski fullmikið af því góða
- Einar Valur á "Magic moment"-leiksins eftir no-look-sendinguna á Þóri, sem setti að sjálfsögðu sniðskotið sitt niður
Tölfræði úr leik - KKF Þórir - HK
Stigahæstu menn:
![]() |
Helgi Þorvaldsson | 19 stig | 17 frk | 0 stoðsendingar |
![]() |
Viðar Tulinius | 18 stig | 8 frk | 1 stoðsendingar |
![]() |
Oddur Grétarsson | 10 stig | 1 frk | 1 stoðsendingar |
Æfingar
Staðan
| Lið | Leikir | U | T | Stig |
| Umf. Álftanes | 15 | 13 | 2 | 26 |
| HK | 15 | 9 | 6 | 18 |
| Félag Litháa | 15 | 8 | 7 | 16 |
| Reynir S. | 15 | 7 | 8 | 14 |
| Mostri | 15 | 7 | 8 | 14 |
| KKF Þórir | 15 | 1 | 14 | 2 |





















Hlynur