Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Blogg

2.2.2010

Með hugann við handboltann?

Þá var komið að því að mæta efsta liði riðilsins í annað sinn og óhætt að segja að skorið hafi verið á við góðan handboltaleik.  Ekkert gekk hjá báðum liðum í sókninni og mikið af fráköstum í boði.  Byrjunarlið var Viðar, Bjössi, Einar, Burkni og Þórir.  Á bekknum voru Davíð, Oddur, Hlynur, Sigurjón og Emil.

Leikurinn byrjar með þristi frá þeim en við setjum þetta svo í 6-3 með þristi frá Viðari.  Endar leikhlutinn 10-10 og leikurinn í járnum.

Annan fjórðung byrjum við af krafti og fór Davíð á kostum þar sem bókstaflega allt var ofaní.  Davíð skorar öll sín 16 stig í fjórðungnum og restin af liðinu var með 6 stig.  Við fráköstuðum einnig mun betur og því staðan 32-26 þar sem þeir setja þrist á síðustu sekúndu.

Þriðji leikhluti varð svo leikhluti Burkna þar sem hann var með nærri öll stig fjórðungsins, 7 stig og kemur sér í 7 vítaskot. Bjössi setur svo síðustu 2 stigin utan af velli og jafnar leikinn í 41-41.  Aðeins 9 stig náðust í fjórðungnum en við náðum að spila góða vörn og staðan því jöfn.

Fjórði fjórðungur byrjar svo hörmulega þar sem við skorum ekki stig fyrr en eftir rúmar 4 mín. Staðan orðin 53-44 og brekkan orðin brött.  Ekkert gengur svo hjá hvoru liði að skora og leikurinn endar í 46-56.

Það sem einkenndi þennan leik var að við fráköstuðum illa í vörninni á tímabili og svo var engin hittni.  Erum með 9 af 33 í skotum utan af velli.  6 af 26 í þriggja og 10 af 23 í vítum.  Sem betur fer hittu þeir lítið betur.  Náum aðeins 4 stoðsendingum.

Það sem var gott var að við vorum að spila ágæta vörn og láta þá taka erfið skot. Misstum fáa bolta og erum í leiknum fram í miðjan 4 leikhluta.  Komumst í 21 vítaskot í fyrstu 3 fjórðungunum.

Tölfræði úr leik - KKF Þórir - Umf. Álftanes

Stigahæstu menn:

Davíð K. Hreiðarsson Davíð K. Hreiðarsson 16 stig 4 frk 0 stoðsendingar
Viktor Burkni Pálsson Viktor Burkni Pálsson 14 stig 6 frk 1 stoðsendingar
Viðar Tulinius Viðar Tulinius 7 stig 3 frk 0 stoðsendingar

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Síðuaðgerðir

Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Senda á facebook Blogg á RSS-formi

Æfingar

Þriðjudaga, kl. 22:00-23:00
(Íþróttahúsi Fellaskóla)
Fimmtudaga, kl. 22:00-23:00
(Íþróttahúsi Fellaskóla)
Föstudaga, kl. 18:00-19:00
(Íþróttahúsi Árbæjarskóla)

Staðan

Lið Leikir U T Stig
Umf. Álftanes 15 13 2 26
HK 15 9 6 18
Félag Litháa 15 8 7 16
Reynir S. 15 7 8 14
Mostri 15 7 8 14
KKF Þórir 15 1 14 2

Úr leikjaskrá

8.3.2010
Umf. Álftanes 93-80 KKF Þórir
20.3.2010
KKF Þórir 68-73 HK


Toppmynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta