Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Blogg

2.2.2010

Þegar á reynir

Annar leikur nýs árs var gegn Reynis-mönnum í Kennaraháskólanum.  Fyrri leikurinn hafði farið miður vel í Sandgerði og tími til kominn að bíta aðeins frá okkur.  Niðurstaðan varð einn af betri leikjum tímabilsins, þar sem liðsandinn og gott samspil héldu okkur inni í jöfnum og skemmtilegum leik til loka.  Byrjunarliðið skipuðu  Þórir, Viðar, Bjössi, Einar og Burkni.  Á bekknum voru Benni, Maggi, Oddur, Sigurjón og Davíð.

Fyrsti leikhluti byrjar á því að Viðar setur körfu, en Reynis-menn svara með þristi.  Þeir komast í 5-11, en þá kemur góður kafli hjá okkur, þar sem Burkni setur m.a. And-1 körfu og þrist stuttu seinna, staðan komin í 15-13.  Liðin skiptast þá á að skora út leikhlutann, en Einar setur síðustu stigin okkar með þristi og kemur okkur 3 stigum yfir, en þeir skora svo 5 stig áður en leikhlutinn er úti, staðan 22-24.

Í byrjun annars leikhluta tökum við 6-2 kafla og komumst í 28-26.  Þá kemur afar slæmur kafli þar sem Reynis-menn setja 4 þrista og 3 tveggja, án þess að við náum að svara fyrir okkur, staðan skyndilega komin í 28-42.  Maggi brýtur að lokum ísinn og setur tvær körfur fyrir okkur á þessu slæma augnabliki og við náum að endurheimta sjálfstraustið og förum hægt og rólega að saxa á þá.  Með skotum frá Viðari og Bjössa og góðum vítaskotum frá Davíð og Einari, minnkum við muninn í 11 stig, staðan í hálfleik 40-51.

Þriðja leikhluta opnar Bjössi og á eftir fylgja karfa frá Þóri og 2 víti frá Viðari og við búnir að minnka muninn í 5 stig.  Reynis-menn setja þá 4 stig í röð, en Burkni svarar því fyrir okkar hönd með þristi og víti.  Einar setur þá niður tvö stig, en við fáum á okkur tvær þriggja stiga körfur í röð frá sjöunni þeirra - heldur dýrt spaug það.  Viðar tekur þá til sinna ráða og setur 7 stig í röð hjá okkur, á meðan við sendum þá miskunnarlaust á vítalínuna (2-6).  Leikmaður nr. 12 hjá þeim setur þá tvær körfur í röð, en Davíð og Oddur núlla það út með tveimur góðum körfum undir lok 3ja leikhluta, staðan 63-70.

Fyrstu stigin í fjórða leikhluta skora Reynis-menn.  Við svörum, en liðin skiptast svo á að skora næstu mínúturnar.  Þegar fimm mínútur eru eftir, setur Viðar niður And-1 körfu og Davíð neglir niður þrist í kjölfarið, munurinn skyndilega kominn niður í tvö stig, 76-78.  Við missum aðeins tökin og þeir ná muninum aftur upp í 9 stig, 79-88.  Þá hefjast spennandi lokamínútur, þar sem Davíð setur niður tvist og Bjössi sömuleiðis.  Við sendum leikmann nr. 8 á vítalínuna og hann setur bæði vítin.  Davíð fer á vítalínuna fyrir okkur og setur þau að sjálfsögðu niður.  Viðar setur þá niður þrist og er þá staðan orðin 88-90.  Aftur fara Reynis-menn á vítalínuna og nýta bæði skotin.  Aftur skorar Viðar og minnkar hann muninn í 2 stig á ný.  Á síðustu sekúndum leiksins brýst Davíð í gegn og setur glæsilegan tvist og víti að auki - jafn leikur og möguleiki á sigri!  Davíð setur því miður ekki vítaskotið ofaní og framlenging staðreyndin, 92-92.

Í framlengingunni erum við ekki alveg með á nótunum og spennufallið greinilega að hafa áhrif.  Reynis-menn setja fyrstu 7 stigin og við komnir í óþægilega stöðu.  Davíð minnkar muninn með tveimur vítum, en þá kemur þristur frá þeim.  Við förum að brjóta og þeir nýta vítin illa.  Oddur og Viðar setja tvo þrista en tapið orðið staðreynd, 100-105.

Þrátt fyrir tap, geta allir leikmenn liðsins verið ánægðir með sitt framlag til leiksins.  Leikurinn var vel spilaður af okkar hálfu, að undanskildum slæmum kafla í 2. leikhluta.  Liðið sýndi þó mikinn karakter með því að rífa sig upp og vinna upp 16 stiga forskot.  Hittnin var fín og við að frákasta nokkuð vel og jafnt út leikinn.  Þriggja stiga hittnin var nokkuð viðunandi, 6-16 eftir venjulegan leiktíma og aðeins nokkur slæm skot í framlengingunni sem skemma hittnina (8-26).

Athyglisverðir punktar:

  • Við hittum yfir 50% úr 2ja stiga skotum, það er aðeins í annað skipti sem það gerist á tímabilinu
  • Við tökum 52 fráköst, þar af 18 sóknarfráköst.  Tveir leikmenn ná 10+ fráköstum
  • Við töpum 22 boltum, það er líklega það eina neikvæða sem hægt er að segja um leikinn
  • Fimm leikmenn skora 10+ stig, tveir þeirra rjúfa 20+ múrinn
  • Leikgleði og góður liðsandi er sérlega áberandi í leiknum og allir staðráðnir í að spila fyrir liðið - við uppskárum næstum sigur fyrir vikið

Tölfræði úr leik - KKF Þórir - Reynir S.

Stigahæstu menn:

Viðar Tulinius Viðar Tulinius 28 stig 10 frk 4 stoðsendingar
Davíð K. Hreiðarsson Davíð K. Hreiðarsson 21 stig 0 frk 4 stoðsendingar
Viktor Burkni Pálsson Viktor Burkni Pálsson 12 stig 6 frk 1 stoðsendingar

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Síðuaðgerðir

Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Senda á facebook Blogg á RSS-formi

Æfingar

Þriðjudaga, kl. 22:00-23:00
(Íþróttahúsi Fellaskóla)
Fimmtudaga, kl. 22:00-23:00
(Íþróttahúsi Fellaskóla)
Föstudaga, kl. 18:00-19:00
(Íþróttahúsi Árbæjarskóla)

Staðan

Lið Leikir U T Stig
Umf. Álftanes 15 13 2 26
HK 15 9 6 18
Félag Litháa 15 8 7 16
Reynir S. 15 7 8 14
Mostri 15 7 8 14
KKF Þórir 15 1 14 2

Úr leikjaskrá

8.3.2010
Umf. Álftanes 93-80 KKF Þórir
20.3.2010
KKF Þórir 68-73 HK


Toppmynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta