Blogg
11.2.2010
Dómarakast í Hólminum
Þá var komið að lokaleiknum við eina félagið sem við höfum unnið á tímabilinu, Mostra frá Stykkishólmi. Mæting var með besta móti, en þrettán manns mættu vestur í Hólminn. Leikinn byrjuðu Hlynur, Viðar, Bjössi, Einar og Burkni. Á bekknum voru Sigurjón, Emil, Benni, Jón, Oddur og Davíð. Maggi var einnig á sínum stað, auk þess sem Helgi sýndi lit og þvældist með.
Við byrjuðum leikinn á almennu andleysi og lentum strax 9-0 undir. Fyrstu sex skot okkar rötuðu engan veginn í hringinn, en eftir fimm mínútna leik brýtur Burkni að lokum ísinn með því að hitta öðru vítaskoti sínu. Ljóst var að breytinga var þörf og Davíð kemur því inn á. Hann er ekki lengi að opna sinn reikning og setur þrist med-det-samme. Oddur kemur inn á og setur sín fyrstu stig og kemur okkar mönnum í 6 stig. Mostra-menn setja næstu körfu, en Davíð setur tvær körfur og kemur stöðunni í 11-10. Þar við sat hjá okkur, en Mostri setur þrjár körfur í viðbót og staðan því 16-10 eftir fyrsta leikhlutann.
Annar leikhluti byrjar ekkert sérstaklega, en Einar skorar að lokum fyrstu stig hans eftir tveggja mínútna leik. Eftir vítaskot hjá Mostra, skorar Benni og Davíð fljótlega á eftir með körfu og víti í kjölfarið, staðan skyndilega orðin jöfn - 17-17. Þá koma 5 stig í röð frá 12-unni hjá þeim, hinum títtnefnda "lánsmanni" frá Snæfelli. Davíð setur niður tvö víti, en þá kemur lítið góður kafli hjá okkur, þar sem Mostri setur fjóra þrista og 18 stig alls gegn þremur frá okkur. Á þeim kafla setur leikmaður nr. 11 hjá þeim 3 þrista og Viðar er með einn slíkan hjá okkur. Staðan í hálfleik 40-22 fyrir heimamenn.
Mostra-menn opna þriðja leikhlutann og auka enn muninn. Einar setur þá næstu fjögur stig, en þristur frá Mostra fylgir fljótlega á eftir. Davíð setur þá 5 stig og staðan orðin 45-31. Þrír þristar frá Mostra gegn þremur tveggja stiga frá okkur (hjá leikmönnum nr. 11, 12 og 13) koma stöðunni í 54-37. Liðin skiptast svo á körfum út leikhlutann og hann endar í 62-42.
Fjórði leikhluti byrjar á körfu frá Davíð, en "lánsmaðurinn" svarar strax með 2 af 15 stigum sínum í leiknum. Oddur setur tvö stig, en þá kemur annar góður kafli hjá Mostra, þar á meðal 3 þristar frá leikmanni nr. 6 (sem setti alls sjö þriggja). Okkar megin voru Davíð, Viðar og Benni að setja hann. Þegar 3 mínútur eru eftir er staðan 81-58 og því ljóst hvort liðið myndi bera sigur úr býtum. Einar tekur sex stiga run og Sigurjón skorar síðustu 2 stig leiksins, en Mostra-menn ná einnig að bæta við sex stigum, lokastaðan því 87-66.
Athyglisverðir punktar úr leiknum:
- Dómarar leiksins fá enga jólagjöf frá okkur þetta árið - svo mörg verða þau orð
- Mostra-menn skora 15 þriggja stiga körfur, við verðum að mæta leikmönnum skyttu-liða betur, ef ekki á illa að fara
- "Lánsmaðurinn" reyndist okkur erfiður á köflum, en sexan fór alveg með okkur - 24 stig frá honum
- Við hittum 5 af 24 þriggja stiga skotum okkar - það eru 19 klúðruð skot
- Við skorum heil 22 stig í fyrri hálfleik - þannig vinna lið ekki leiki
- Við lentum í vandræðum í fráköstunum, Davíð og Einar svöruðu kallinu með 8 og 11 á mann
Tölfræði úr leik - Mostri - KKF Þórir
Stigahæstu menn:
![]() |
Davíð K. Hreiðarsson | 27 stig | 8 frk | 2 stoðsendingar |
![]() |
Einar Valur Gunnarsson | 14 stig | 11 frk | 1 stoðsendingar |
![]() |
Viðar Tulinius | 6 stig | 6 frk | 1 stoðsendingar |
Æfingar
Staðan
| Lið | Leikir | U | T | Stig |
| Umf. Álftanes | 15 | 13 | 2 | 26 |
| HK | 15 | 9 | 6 | 18 |
| Félag Litháa | 15 | 8 | 7 | 16 |
| Reynir S. | 15 | 7 | 8 | 14 |
| Mostri | 15 | 7 | 8 | 14 |
| KKF Þórir | 15 | 1 | 14 | 2 |





















Bæta við athugasemd