Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Blogg

1.3.2010

Raunastund gegn Rostungunum!?

Rostungarnir frá SandgerðiÞað var fámennt en góðmennt þennan föstudagseftirmiðdag er við mættum rostungunum í Reyni í þeirra heimabæ. Úr tveimur bílum stigu 7 fílhraustir menn og Emil, okkar njósnari og innanbúðarmaður var sendur þangað fyrr um daginn til að taka út liðið. Hann hafði þó takmarkaðan tíma og tókst bara að reikna út fyrri hálfleikinn eins og átti eftir að koma í ljós.

Byrjunarlið var Benni, Burkni, Einar, Emil og Hlynur.  Á bekknum voru Þórir, Maggi og Óskar.

Einar opnar leikinn og áttum við eftir að ná forystunni þar sem nánast allir komust á blað. Þeir jafna og staðan 16-16 í lok fyrsta.

Annar leikhluti byrjar á körfu frá Benna og þristi frá Emil og við á fljúgandi siglingu. Þeir taka þá ryspu og koma þessu í 27-23. Við söxum á þetta jafnt og þétt og þristur frá Magga kemur þessu í 37-36. Þeir setja á okkur 5 stig en í lok leikhlutans er brotið gróflega á Magga í þriggja og setur hann niður öll vítin. Staðan 42-39 í hálfleik fyrir Reyni.

Seinni hálfleikur byrjar ekki af krafti hjá okkur. Við lendum í tómu basli með vörnina hjá þeim og lendum fljótt 51-41 undir. Tökum við leikhlé þá og endurskipuleggjum okkur. Komum þessu í 55-50 með þristi frá Emil. Þeir setja þó á okkur síðustu 6 stigin og leikmenn Þóris gjörsamlega að missa það. Skapofsahundarnir Þórir og Einar tóku þá hárblásarann á hvorn annan og þurfti öryggisgæslan að stíga menn í sundur! Staðan 61-50.

Fjórði byrjar enn verr og fyllist hratt og vel uppí dálkinn með töpuðum boltum á statt blaðinu. Fyrr en varir er staðan orðin 79-52 og allt ofaní hjá Reynismönnum. Þá var bara að bjarga part af andlitinu og setjum við á þá nokkur stig undir restina. En til að toppa leikinn þá neita fætur Benna að hlýða húsbóndanum og klúðrast tvö opin lay-up í röð og stoðsendingarnar mínar! Lokatölur 87-63.

Þessi leikur var bara hvítt og svart. Fyrri hálfleikur mjög góður, gott jafnvægi í sókninni, stoðsendingar, vörnin fín og tapaðir boltar í lágmarki. Seinni hálfleikur var bara ekki nógu góður og hana nú.

ATHUGASEMD: Þegar leikskýrslan var skoðuð nánar kom í ljós að gleymdist að skrá "and 1" körfuna hans Benna í fyrsta leikhluta. Á leikskýrslu sést bara 1 víti tekið! Því ætti staðan að hafa verið 16-18 fyrir okkur í lok fyrsta. Einnig er síðasta karfa 3ja leikhluta, floaterinn hjá Hlyn ekki skráður. Vantar því 4 stig hjá okkur. Það var ákvörðun okkar Jóns að skrá leikinn 87-67 svo að "stattið" gengi upp. Benni og Hlynur fá því sínar körfur skráðar.

Tölfræði úr leik - Reynir S. - KKF Þórir

Stigahæstu menn:

Benedikt Þorgeirsson Benedikt Þorgeirsson 16 stig 9 frk 2 stoðsendingar
Einar Valur Gunnarsson Einar Valur Gunnarsson 14 stig 11 frk 5 stoðsendingar
Magnús Sigfússon Magnús Sigfússon 11 stig 4 frk 1 stoðsendingar

Athugasemdir »

1

Benni

2.3.2010 22:50

Góður pistill Einar :) Gaman að þessu.

 Verst að löppin lék mig svona grátt hefði ekki verið verra að skríða í 20 stigin og eins hefði skotnýtingin verið fallegri fyrir vikið.

Það væri gaman ef þið félagar gætuð hent inn blokkinu mínu frá fjórða leikhluta sem var upphafið að endinum hjá mér, því eftir sprettinn fram lá ég eins og hræ á perketinu í Sandgerði í fyrra sinnið .

Dos rejections hjá Rambis þennan dag.

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Síðuaðgerðir

Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Senda á facebook Blogg á RSS-formi

Æfingar

Þriðjudaga, kl. 22:00-23:00
(Íþróttahúsi Fellaskóla)
Fimmtudaga, kl. 22:00-23:00
(Íþróttahúsi Fellaskóla)
Föstudaga, kl. 18:00-19:00
(Íþróttahúsi Árbæjarskóla)

Staðan

Lið Leikir U T Stig
Umf. Álftanes 15 13 2 26
HK 15 9 6 18
Félag Litháa 15 8 7 16
Reynir S. 15 7 8 14
Mostri 15 7 8 14
KKF Þórir 15 1 14 2

Úr leikjaskrá

8.3.2010
Umf. Álftanes 93-80 KKF Þórir
20.3.2010
KKF Þórir 68-73 HK


Toppmynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta