Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

1.3.2010

Raunastund gegn Rostungunum!?

Það var fámennt en góðmennt þennan föstudagseftirmiðdag er við mættum rostungunum í Reyni í þeirra heimabæ. Úr tveimur bílum stigu 7 fílhraustir menn og Emil, okkar njósnari og innanbúðarmaður var sendur þangað fyrr um daginn til að taka út liðið. Hann hafði þó takmarkaðan tíma og tókst bara að reikna út fyrri hálfleikinn eins og átti eftir að koma í ljós.

Byrjunarlið var Benni, Burkni, Einar, Emil og Hlynur.  Á bekknum voru Þórir, Maggi og Óskar.

11.2.2010

Dómarakast í Hólminum

Þá var komið að lokaleiknum við eina félagið sem við höfum unnið á tímabilinu, Mostra frá Stykkishólmi.  Mæting var með besta móti, en þrettán manns mættu vestur í Hólminn.  Leikinn byrjuðu Hlynur, Viðar, Bjössi, Einar og Burkni.  Á bekknum voru Sigurjón, Emil, Benni, Jón, Oddur og Davíð.  Maggi var einnig á sínum stað, auk þess sem Helgi sýndi lit og þvældist með.

2.2.2010

Með hugann við handboltann?

Þá var komið að því að mæta efsta liði riðilsins í annað sinn og óhætt að segja að skorið hafi verið á við góðan handboltaleik.  Ekkert gekk hjá báðum liðum í sókninni og mikið af fráköstum í boði.  Byrjunarlið var Viðar, Bjössi, Einar, Burkni og Þórir.  Á bekknum voru Davíð, Oddur, Hlynur, Sigurjón og Emil.

KKF Þórir

Verið velkomin á vef Körfuknattleiksfélagsins Þóris.  KKF Þórir heldur hér úti vefsíðu þar sem hægt er að skoða upplýsingar um leikmenn liðsins, sem og leiki þess.  Stöðu liðsins í deildum má finna á vefnum og þá er hægt að finna hér myndir úr leikjum og öðrum viðburðum sem snerta félagið.


Æfingar

Þriðjudaga, kl. 22:00-23:00
(Íþróttahúsi Fellaskóla)
Fimmtudaga, kl. 22:00-23:00
(Íþróttahúsi Fellaskóla)
Föstudaga, kl. 18:00-19:00
(Íþróttahúsi Árbæjarskóla)

Staðan

Lið Leikir U T Stig
Umf. Álftanes 12 10 2 20
HK 12 7 5 14
Reynir S. 12 6 6 12
Félag Litháa 12 6 6 12
Mostri 12 6 6 12
KKF Þórir 12 1 11 2

Úr leikjaskrá

26.2.2010
Reynir S. 87-67 KKF Þórir
8.3.2010
Umf. Álftanes 93-80 KKF Þórir
20.3.2010
KKF Þórir - HK


Toppmynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta